Eftirlitsferð TF-SIF í neyðarskýli á Hornströndum - Allar víkur fullar af ís
Miðvikudagur 23. mars 2005.
Áhöfn TF-SIF fór í eftirlitsferð um Hornstrandir um helgina til að kanna ástand björgunar- og neyðarskýla á svæðinu. Með í för voru tveir björgunarsveitarmenn frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg og forstjóri Landhelgisgæslunnar sem er að kynna sér fjölbreytta starfsemi stofnunarinnar.
Venjulega sjá áhafnir varðskipanna um þetta eftirlit en nú var ekki hægt að komast að björgunarskýlunum frá sjó vegna íss. Eftirlitið felst í að yfirfara ástand skýlanna og kanna hvort talstöðvarnar í þeim eru í lagi.
TF-SIF fór frá Reykjavíkurflugvelli kl. 10 á sunnudaginn. Næsti áfangastaður var Ísafjörður þar sem tekið var eldsneyti. Þaðan var flogið til Aðalvíkur og lent á varðskipinu Ægi sem lá þar fyrir akkeri. Áhöfnin snæddi hádegismat um borð í varðskipinu og síðan var haldið í Hrafnsfjörð, Furufjörð og Barðsvík. Ástand björgunarskýla þar var kannað og talstöðvar prófaðar. Eftir millilendingu um borð í Ægi var haldið til Hornvíkur, Hlöðuvíkur og Fljótavíkur til að athuga með neyðarskýlin þar.
Enn var komið við í varðskipinu Ægi og gengið frá búnaði þyrlunnar. Þaðan var haldið um fimmleytið og eftir millilendingu á Ísafirði til eldsneytistöku var þyrlunni flogið til Reykjavíkur þar sem hún lenti kl. 19.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.


Mynd / Björn Brekkan flugrekstrarstjóri: TF-SIF við neyðarskýlið í Furufirði.

Mynd / Björn Brekkan Björnsson flugrekstrarstjóri: Furufjörður fullur af ís.

Mynd / Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður: Óskar Ármann Skúlason bátsmaður, Ásmundur Pétursson háseti, Jóhannes F. Ægisson háseti og Jóhann Örn Sigurjónsson háseti bíða á dekkinu á Ægi eftir komu TF-SIF.

Mynd / Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður: TF-SIF að lenda á dekkinu á Ægi í Aðalvík.

Mynd / Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður.

Mynd / Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður: Benóný Ásgrímsson yfirflugstjóri með fínu húfuna sína. Leyndarmál sem venjulega er geymt undir þyrluhjálminum.
Mynd / Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður: Halldór Gunnlaugsson skipherra á Ægi og Georg Kr. Lárusson forstjóri meta stöðuna um borð í Ægi í Aðalvík.
