Fréttir

Erlend karfaskip komin á Reykjaneshrygg

23. mar. 2005

Miðvikudagur 23. mars 2005.

TF-SYN, flugvél Landhelgisgæslunnar, fór í eftirlitsflug yfir karfamiðin á Reykjaneshrygg í dag.  Tvö erlend skip voru þar að veiðum.  Að sögn Páls Geirdal yfirstýrimanns í áhöfn TF-SYN er annað skipið frá Litháen og hitt frá Portúgal.

Erlendu karfaskipin eru eins og vorboðinn og koma ávallt á svipuðum tíma á miðin.  Búast má við að þeim fjölgi talsvert á næstunni.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.


Mynd LHG: Skipið Radvila frá Litháen.

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica