Fréttir

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eyða þremur tundurduflum á Langanesi

22. mar. 2005

Þriðjudagur 22. mars 2005.

Tilkynning barst frá lögreglunni á Þórshöfn í gær um að tundurdufl hefði fundist á Langanesi.  Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar fóru norður í morgun og voru rétt fyrir kvöldmatarleytið að sprengja tundurduflið til að eyða því. 

Er sprengjusérfræðingarnir höfðu verið á staðnum um tíma fundu þeir tvö tundurdufl til viðbótar og eru að eyða þeim nú kl.19.

Meðfylgjandi mynd tók lögreglan á Þórshöfn.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica