Heimsókn forstjóra Landhelgisgæslunnar til bandarísku strandgæslunnar
22. mar. 2005
Þriðjudagur 22. mars 2005.
Dagana 7.-16. mars síðastliðinn fór Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar ásamt Ásgrími L. Ásgrímssyni deildarstjóra í kynningarheimsókn til bandarísku Strandgæslunnar (USCG). Það var bandaríska sendiráðið á Íslandi sem bauðst upphaflega til að hafa milligöngu um þessa heimsókn sem síðar var skipulögð með aðstoð bandaríska utanríkisráðuneytisins og starfsfólki í höfuðstöðvum Strandgæslunnar.
Til að byrja með voru höfuðstöðvar fyrsta umdæmis bandarísku Strandgæslunnar heimsóttar en þær eru í Boston. Margt er líkt með verkefnum Strandgæslunnar í þessu umdæmi og verkefnum Landhelgisgæslunnar og var það megin ástæða þess að þangað var haldið til að byrja með. Ein helstu fiskimið Bandaríkjanna eru úti fyrir ströndum Nýja Englands og því er Strandgæslan í þessu umdæmi ábyrg fyrir fiskveiðieftirliti og þjónustu við fiskiskipaflotann rétt eins og Landhelgisgæslan.
Landhelgisgæslumönnum var boðið að sitja á aðgerðarfundi hjá Strandgæslunni þar sem deildarstjórar skýrðu yfirmanni umdæmisins, David Pekoske aðmíráli, frá verkefnum gærdagsins og fyrirhuguðum verkefnum næsta sólarhrings. Ýmsar deildir strandgæslunnar voru heimsóttar og þær kynntar, þ.á.m. deildir sem fara með leitar- og björgunarmálefni, löggæsluverkefni og öryggismál. Einnig var stjórnstöð umdæmisins skoðuð. Seinna þennan dag var flotastöð Strandgæslunnar í Boston skoðuð en þaðan eru gerð út nokkur stór varðskip,varðbátar, vitaþjónustuskip og hafnareftirlitsbátar. Deginum lauk síðan með eftirlitsferð um höfnina í Boston með einum af eftirlitsbátum Strandgæslunnar.
Á öðrum degi heimsóknarinnar var ferðast niður til Cape Cod þar sem ein af björgunarstöðvum Strandgæslunnar var skoðuð. Þessi stöð þjónar sunnanverðum Cape Cod flóa og státar af nokkrum smærri björgunar- og eftirlitsbátum sem voru skoðaðir við þetta tækifæri. Seinna þennan dag var flotastöð Strandgæslunnar í Wood Hole skoðuð, þ.á.m. stjórnstöð og skipaviðgerðarþjónusta. Frá stöðinni eru gerð út nokkur minni varskip, vitaþjónustuskip og eftirlitsbátar. Stöðin er einnig stjórnstöð aðgerða Strandgæslunnar frá Cape Cod og að Long Island í New York fylki en á þessum slóðum eru margar björgunarstöðvar og varðskip gerð út.
Frá Woods Hole var haldið að flugbjörgunarstöð Strandgæslunnar á Cape Cod og áður en ferðalangarnir vissu voru þeir komnir um borð í H-60 Jayhawk björgunarþyrlu sem flutti þá um borð í varðskipið Campell sem var við eftirlitstörf undan Nýja Englandi. Um borð í Campell var dvalið í sólarhring og fylgst með fiskveiðieftirliti skipsins og fl. Þyrla sótti Landhelgisgæslumennina aftur um borð og næsta verkefni var að fræðast um starfsemi flugbjörgunarstöðvarinnar en þaðan eru gerðar út 4 þyrlur og 4 Falcon eftirlitsflugvélar. Í stöðinni er einnig fiskveiðieftirlitsskóli sem var skoðaður. Að kvöldi var flogið með Falcon eftirlitsvél til New London í Connecticut þar sem liðsforingjaskóli Strandgæslunnar er en þaðan útskrifaðist Ásgrímur árið 1987 eftir 4 ára nám.
Á föstudegi var liðsforingjaskólinn skoðaður en þar eru að jafnaði um 800-900 nemendur. Auk þess var björgunarstöðin í New London skoðuð en þaðan er einn af 47 feta björgunarbátum Strandgæslunnar gerður út en þessir bátar eru meðal nýjustu og fullkomnustu tækjum stofnunarinnar. Ferðast var til Washington DC að því búnu og helgin notuð til að hvílast.
Á mánudegi heimsóttu Landhelgisgæslumenn höfuðstöðvar bandarísku Strandgæslunnar og við það tækifæri var heilsað upp á Tomas Collsins aðmírál, yfirmann Strandgæslunnar.
Eftir gott spjall við aðmírálinn fékk hann skjöld Landhelgisgæslunnar að gjöf. Deildarstjórar kynntu starfsemi sinna deilda og framtíðarsýn Strandgæslunnar, þar á meðal varðandi endurnýjun flugflota Strandgæslunnar. Rætt var um fyrirhuguð kaup Strandgæslunnar á 30-35 CASA eftirlitsvélum og útskýrt hvers vegna þessi flugvél var valin fremur en aðrar flugvélategundir.
Sendiherra Íslands í Bandaríkjunum sýndi ferðalöngunum þann heiður að bjóða þeim til kvöldverðar á mánudagskvöldi en síðan var farið í fylgd fulltrúa í sendiráðinu í heimsókn í varnarmálaráðuneytið í Pentagon-byggingunni á þriðjudag. Rætt var við fulltrúa í ráðuneytinu um flugvéla- og skipakost Landhelgisgæslunar og fyrirsjánlega þátttöku stofnunarinnar í eftirliti á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Að því búnu var ferðast samfellt frá Washington DC til Baltimore, þaðan til Boston og að lokum til Íslands. Það voru því þreyttir en reynslunni ríkari Landhelgisgæslumenn sem lentu í Keflavík að morgni miðvikudagsins 16. mars.

Við eitt af varðskipunum sem gerð eru út frá flotastöðinni í Woods Hole. Yfirmaður stöðvarinnar, Capt. Judith Keene, Georg og Ásgrímur.

Ásgrímur og Georg klárir í þyrluflug út í varðskipið Campbell.

Varðskipið Campbell á siglingu. Skipið er 270 fet.

Georg skoðar Falcon eftirlitsflugvél ásamt yfirmanni flugstöðvarinnar á Cape Cod, Captain David Brimblecom.

Georg og Tomas Collins aðmíráll, yfirmaður bandarísku Strandgæslunnar í höfuðstöðvum hennar í Washington DC. Aðmírállinn heldur á áletruðum skildi með merki Landhelgisgæslunnar.