Fréttir

Leit að ferðalöngum á hálendinu bar árangur - áhöfn TF-LIF fann þá suðaustur af Bláfelli

21. mar. 2005

Mánudagur 21. mars 2005.

Áhöfn TF-LIF fann um kvöldmatarleytið þrjá ferðalanga á hálendinu sem leitað hafði verið að síðan um hádegið.  Þeirra hafði verið saknað síðan í gærkvöldi.

 

Björgunarmiðstöðin í Skógarhlíð hafði samband um hádegið og tilkynnti að björgunarsveitir væru að hefja leit að tveimur jeppum sem fóru frá Dalvík á hádegi í gær.  Fyrirliggjandi upplýsingar um ferðalanga voru að um væri að ræða fólk undir tvítugu sem hefði farið á gömlum bílum um Kaldadal og Kjöl og hefðu ætlað að vera komin til Keflavíkur í gærkvöldi.  Þau væru með farsíma og talstöðvar en ekki hefði náðst samband við þau.  Fyrirhugað var fara um Kjöl, Langjökul og Kaldadal til leitar.  Óskað var eftir að þyrla Landhelgisgæslunnar tæki þátt í leitinni.

 

TF-LIF fór í loftið kl. 12:33 og flaug yfir leitarsvæðið en ekki sást til jeppanna.  Þyrlan lenti síðan á Akureyri um fimmleytið til að taka eldsneyti.  Þaðan fór hún aftur kl. 17:45 og var komin á leitarsvæðið kl. 18:15.   Áhöfn TF-LIF kom auga annan bílinn um kl. 18:50 en hann var mannlaus.  Þyrlan fylgdi slóð sem lá frá bílnum og fann hinn bílinn suðaustur af Bláfelli kl. 19:35 og þar voru ferðalangarnir heilir á húfi, tveir strákar og ein stelpa.

 

TF-LIF lenti með ungmennin þrjú innanborðs á Reykjavíkurflugvelli kl. 21:10 um kvöldið.

 

Dagmar Sigurðardóttir

fjölmiðlaftr.


Mynd: Áhöfn TF-LIF. Annar jeppinn sem ungmennin voru á.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica