Fréttir

Íslenskt fjareftirlitskerfi kynnt á ráðstefnu FAO í Róm

21. mar. 2005

Mánudagur 21. mars

Gylfi Geirsson forstöðumaður fjarskipta- og upplýsingatæknisviðs Landhelgisgæslunnar, hélt nýlega fyrirlestra um notkun íslenskra stjórnvalda á fjareftirlitskerfi til fiskveiðieftirlits á fundi fiskimálanefndar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í Róm. Gylfi tók þátt í ráðstefnunni á vegum sjávarútvegsráðuneytisins.

Meðan á fundi FAO stóð var sýnd kynning um íslenska fjareftirlitskerfið á tölvuskjám þar sem fundirnir fóru fram.  Gylfi fór sérstaklega yfir skjávarpakynningu á kerfinu með mörgum ráðstefnugestum og svaraði spurningum þeirra. Þáttaka Gylfa á ráðstefnunni var skipulögð af sjávarútvegsráðuneytinu.

Sá misskilningur hefur víða heyrst að fjareftirlitskerfi komi í stað hefðbundins eftirlits með varðskipum.  Því fer fjarri en fjareftirlitskerfið styður annað eftirlit Landhelgisgæslunnar og gerir það markvissara. Fjareftirlitskerfið kemur ekki í stað hefðbundinna skoðana löggæslumanna á varðskipunum á afla, veiðarfærum, búnaði og atvinnuréttindum skipsáhafna.  Fjareftirlitið veitir eingöngu upplýsingar um staðsetningu skipa og er lítils virði ef ekkert varðskip er á svæðinu til að færa brotlegt skip til hafnar eða hefja aðrar aðgerðir til að koma í veg fyrir lögbrot.  Að auki eru varðskipin björgunarskip og mengunareftirlitsskip og gegna fjölmörgum öðrum hlutverkum sem fjareftirlitskerfi kemur ekki í staðinn fyrir.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.


Gylfi kynnir kerfið fyrir sænskum fulltrúa á ráðstefnu FAO.

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica