Fréttir

Varðskipið Týr 30 ára

18. mar. 2005

Föstudagur 18. mars 2005.

Flaggskip Landhelgisgæslunnar, varðskipið Týr, er 30 ára um þessar mundir og halda starfsmenn Landhelgisgæslunnar upp á afmæli skipsins í dag.

Sigurður Steinar Ketilsson skipherra segir skipið vera happaskip og það hafi reynst vel allan þennan tíma. Hann segir það hafa fylgt skipinu frá því það var tekið í notkun að þar er valinn maður í hverju rúmi og mannskapurinn alveg til fyrirmyndar. Margir í áhöfn skipsins hafa verið lengi við störf hjá Landhelgisgæslunni.

Pétur Sigurðsson forstjóri skrifaði undir smíðasamning skipsins í desember 1973 og var því hleypt af stokkunum í október 1974.  Dóra Guðbjartsdóttir eiginkona Ólafs Jóhannessonar dómsmálaráðherra gaf skipinu nafnið Týr við það tækifæri.

Skipið fór í reynslusiglingu 8. mars 1975 undir dönskum fána en var formlega afhent Landhelgisgæslunni 14. mars 1975.  Pétur Sigurðsson forstjóri Landhelgisgæslunnar tók á móti skipinu og var þá íslenski fáninn dreginn að húni.  Skipið kom síðan til Reykjavíkur í fyrsta sinn 24. mars 1975 og lagðist þar að bryggju við Ingólfsgarð kl. 16:37 eins og fram kemur í bókum skipsins. 

Týr fór í sína fyrstu ferð til björgunar- og landhelgisgæslustarfa frá Reykjavík 29. mars 1975 undir stjórn Guðmundar Kærnested skipherra.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.


Mynd: Jón Kr. Friðgeirsson bryti.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica