Fréttatilkynning frá forstjóra Landhelgisgæslunnar vegna breytinga og endurbóta á varðskipunum Ægi og Tý
Þriðjudagur 15. mars 2005.
Ríkiskaup sáu eins og kunnugt er um útboð á endurbótum og breytingum á varðskipunum Ægi og Tý. Fulltrúar Landhelgisgæslunnar, Gylfi Geirsson forstöðumaður upplýsingatækni- og fjarskiptasviðs og Ingvar Kristjánsson forstöðumaður varðskipatæknisviðs, tóku þátt í vinnu við gerð tæknilýsingarhluta útboðsgagna sem fyrirtækið Útgerðartækni bar ábyrgð á. Aðkoma fulltrúa Landhelgisgæslunnar að útboðsferlinu var því eingöngu tæknilegs eðlis. Útboðsgögnin voru að öðru leyti unnin af Ríkiskaupum.
Við gerð útboðsgagnanna var talið nauðsynlegt að horfa til þess hvort bjóðendur uppfylltu lágmarks gæðakröfur bæði vegna umfangs verksins og hversu flókið það er. Var tekið mið af því hvort bjóðendur uppfylla alþjóðlegan gæðastaðal, ISO 9001, sem er reyndar eini staðallinn sem hægt er að notast við. Að auki var horft til þess hvort bjóðendur hafa reynslu af sambærilegum verkefnum. Til að útiloka ekki íslensku skipasmíðastöðvarnar var ISO vottun og reynsla metin til stiga í svokölluðu valmódeli en ekki gerð að skilyrði, en ósk um vottun er eðlileg varúðarráðstöfun í alþjóðlegum útboðum af þessu tagi.
Valmódelið, sem ræður stigagjöf fyrirtækjanna sem buðu í verkið, var byggt upp þannig að verð gaf 70% stiga, ISO vottun 20% og reynsla 10%. Fulltrúar Ríkiskaupa tjáðu fulltrúum Landhelgisgæslunnar að þeir hefðu borið valmódelið undir framkvæmdaráð útboðsmála sem hefði ekki gert athugasemdir við það. Valmódelið var einnig kynnt rækilega í útboðsgögnum og er Landhelgisgæslunni ekki kunnugt um að bjóðendur hafi gert athugasemdir við það.
Áðurnefndir fulltrúar Landhelgisgæslunnar voru viðstaddir opnun tilboða hjá Ríkiskaupum og yfirfóru þau í samvinnu við Ríkiskaup. Samkvæmt valmódelinu varð pólska fyrirtækið Morska hlutskarpast með 70 stig fyrir verð, 20 stig fyrir ISO vottun og 7 stig fyrir reynslu eða samtals 97 stig. Næst kom pólska skipasmíðastöðin Nauta með 60 stig fyrir verð, 20 stig fyrir ISO vottun og 5 stig fyrir reynslu eða samtals 85 stig. Þriðja í röðinni var tilboð Slippstöðvarinnar á Akureyri með 68 stig fyrir verð, 0 stig fyrir ISO vottun og 7 stig fyrir reynslu, samtals 75 stig.
Fulltrúar Landhelgisgæslunnar tóku þátt í skýringarviðræðum við skipasmíðastöðina Morska sem var með hagstæðasta tilboðið samkvæmt valmódelinu en Ríkiskaup stýrðu þeim viðræðum. Eftir skýringaviðræður við Morska sem fram fóru þann 9. febrúar s.l. ákváðu Ríkiskaup að hafna öllum tilboðum vegna þess hve miklu munaði á þeim og kostnaðaráætlun Landhelgisgæslunnar. Í framhaldi af því ákváðu Ríkiskaup að hefja svonefnt samningskaupaferli þar sem öllum bjóðendum sem áður höfðu sent inn gild tilboð var gefinn kostur á að senda inn endurskoðuð verðtilboð. Einungis þrír bjóðendur sendu inn tilboð og voru þau opnuð 7. mars sl. Pólska skipasmíðastöðin Morska og hollenska skipasmíðastöðin Reimerswaal höfðu lækkað sín tilboð en tilboðið frá Slippstöðinni var óbreytt. Hagstæðasta tilboðið var eftir sem áður var frá Morska. Þar næst kom tilboð Slippstöðvarinnar og Reimerswaal var í þriðja sæti.
Landhelgisgæslan er ekki í aðstöðu til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um við hvern er rætt eða samið. Einungis er fylgt lögum, reglum og ráðleggingum Ríkiskaupa sem snerust um að fylgja útboðsreglum og að taka hagkvæmasta tilboði samkvæmt valmódeli.
Landhelgisgæslan er jákvæð gagnvart íslenskum skipasmíðastöðvum og telur augljóst hagræði af því að vinna svo stór verkefni innanlands. Stofnunin er hins vegar skyldug, lögum samkvæmt, að skipta við Ríkiskaup og bjóða svo stór verk út á evrópska efnahagssvæðinu. Þetta fyrirkomulag setur Landhelgisgæslunni skorður við val á samningsaðila. Að öðru leyti vísast til skýringa Ríkiskaupa varðandi útboðs- og samningsferlið.
Georg Kr. Lárusson
forstjóri.
