TF-SIF sótti slasaðan hestamann
Mánudagur 14. mars 2005.
Neyðarlínan tilkynnti kl. 18:23 að maður hafi slasast er hann féll af hestbaki í Vík í Mýrdal. Óskað var eftir þyrlu í viðbragðsstöðu. Skömmu síðar hringdi læknir frá Vík og óskaði eftir að maðurinn yrði sóttur þar sem hann var mikið slasaður.
Áhöfn, TF-SIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 18:29 og fór hún í loftið kl. 18:47. Var maðurinn fluttur í sjúkrabíl á móti þyrlunni og lenti TF-SIF á Hvolsvelli kl. 19:13. Þar var maðurinn fluttur úr sjúkrabílnum yfir í þyrluna og lenti hún við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 19:45.
fjölmiðlaftr.
