Fréttir

TF-LIF sótti slasaðan sjómann um borð í Björgvin EA-311

14. mar. 2005

Mánudagur 14. mars 2005.

Skipstjórinn á togskipinu Björgvin EA-311 hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 12:48 og óskaði eftir leiðbeiningum læknis þar sem einn skipverjanna hafði slasast á hendi. Skipið var þá statt á Meðallandsbug, 33 sjómílur suðsuðvestur af Ingólfshöfða.

Læknir í þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar hafði samband við skipstjórann til að fá upplýsingar um ástand mannsins og gefa ráðleggingar um umönnun hans. Var áhöfn TF-SIF kölluð út í framhaldi af því.  Þyrlan fór í loftið kl. 13:34 og var óskað eftir að skipið sigldi til móts við þyrluna í átt að Vestmannaeyjum.

TF-SIF kom að Björgvin kl. 14:41 og fór sigmaður niður í skipið og sótti hinn slasaða.  Því var lokið kl. 14:46 og var þá haldið til Reykjavíkur.  Þyrlan lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús kl. 15:43 þar sem slasaði skipverjinn fór á bráðamóttöku.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica