Annríki hjá Landhelgisgæslunni
Laugardagur 12. mars 2005.
Annríki hefur verið hjá Landhelgisgæslunni í dag. Þyrluáhöfn var tvisvar kölluð út vegna slysa úti á landi, áhöfn flugvélar Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, fór í ískönnunarflug og nú er varðskip á leiðinni í átt að nótaskipinu Oddeyri EA-210 sem varð vélarvana 8 sjómílur suðaustur af Papey um þrjúleytið í dag.
Fyrirhugað var að áhöfn þyrlunnar TF-SIF tæki þátt í æfingu í Reykholti með björgunarsveitinni í Biskupstungum. Áhöfnin var úti á flugvelli að undirbúa sig þegar tilkynning barst frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 14:54 um snjóbrettaslys í Bláfjöllum. Eftir að áhöfnin fékk tilkynninguna liðu 10 mínútur þar til þyrlan fór í loftið og hélt í átt að Bláfjöllum. Samkvæmt upplýsingum frá Neyðarlínunni höfðu tveir 15 ára drengir slasast á snjóbrettum.
Er þyrlan var að nálgast Bláfjöll var tilkynnt að vélsleðamaður hefði slasast við Strút norðan við Mýrdalsjökul. Hann hafði keyrt fram af hengju og lenti á ísvegg. Læknir og björgunarsveitarmenn voru þá hjá drengjunum í Bláfjöllum og töldu meiðsl þeirra ekki það alvarleg að þyrlan þyrfti að sækja þá. Neyðarlínan afturkallaði því beiðni um aðstoð þyrlu þangað. Hélt TF-SIF þá til baka til Reykjavíkur þar sem eldsneyti var sett á vélina og fór hún aftur í loftið kl. 15:27 og hélt ferðinni áfram að Strúti. Björgunarsveitarmenn úr Hafnarfirði voru hjá vélsleðamanninum og hlúðu að honum þar til þyrlan kom á vettvang. Hann var fluttur á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi en þar lenti þyrlan um kl. 17 í dag.
Í millitíðinni, um kl. 15:30, hafði Vaktstöð siglinga samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og tilkynnti að nótaskipið Oddeyri EA-210 væri vélarvana 8 sjómílur suðaustur af Papey og ræki frá landi. Ekki var búið að lýsa yfir neyðarástandi en varðskipi var beint á svæðið til vonar og vara. Frystitogarinn M/S Brettingur var í nánd við Oddeyrina og er fyrirhugað að hann dragi hana til Fáskrúðsfjarðar. Á svæðinu er bjart og 15 metrar á sekúndu.
Upplýsingar úr ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar verða birtar á heimasíðu Veðurstofu Íslands en þar er hægt að nálgast bæði hafískort og skýrslu áhafnar TF-SYN um ískönnunarflugið. Sjá nánar á slóðinni: http://www.vedur.is/hafis/gaeslan/index.html?
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.

Mynd: Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður. TF-SIF á flugi.
