Fréttir

Samið við pólsku skipasmíðastöðina Morska um endurbætur og breytingar á varðskipunum

11. mar. 2005

Föstudagur 11. mars 2005.

Landhelgisgæslan samdi í vikunni við pólsku skipasmíðastöðina, Morska Stocznia Remontova, um breytingar og endurbætur á varðskipunum Ægi og Tý í kjölfar útboðs sem Ríkiskaup hafði umsjón með.

Samningstímabilið er 2 ár og verður Ægi breytt í sumar en Tý sumarið 2006. Tilboð voru opnuð 27. janúar sl. og voru sex þeirra metin gild.  Þar af voru tvö frá íslenskum skipasmíðastöðvum, Þorgeiri og Ellerti á Akranesi og Slippstöðinni á Akureyri.  Morska bauð sem nemur tæplega 274 milljónum íslenskra króna  í breytingar á báðum varðskipunum en önnur tilboð voru mun hærri og það hæsta  228% hærra en lægsta boð. Kostnaðaráætlun Landhelgisgæslunnar hljóðaði upp á um 191 milljón íslenskra króna en helstu ástæður þess hversu miklu munar á henni og lægsta boði er m.a. að á s.l. ári hækkaði verð á stáli mikið. Þá er og gert ráð fyrir að verkið verði unnið á háannatíma hjá skipasmíðastöðvum.  

Þegar tilboð í verkin voru metin var ekki eingöngu tekið mið af fjárhæðum. Litið var til þess hvort fyrirtækin höfðu ISO vottun og reynslu af sambærilegum verkum.  Morska var ekki eingöngu með lægsta tilboðið í krónum talið heldur hafði það einnig ISO vottun og mikla reynslu.  Gefin voru stig fyrir fyrirfram gefna þætti og fékk Morska 97 stig af 100 mögulegum en önnur fyrirtæki voru með talsvert lægri einkunn.


Í verkinu felst að brú skipanna verður endurnýjuð og hún stækkuð.  Stjórnbúnaður og rafmagnslagnir í brúnni verða endurnýjaðar ásamt stjórnpúltum. Mjög fullkominn samhæfður tölvustjórnbúnaður verður  í  nýjum stjórnpúltum. Íbúðir áhafnarinnar og dráttarvindur skipanna verða endurnýjaðar. Einnig verður sett niður stærri og fullkomnari vinda með átaksstjórnun. Þessar breytingar eru samhliða hefðbundinni slipptöku skipanna.

Sameiginleg fréttatilkynning Landhelgisgæslunnar og Ríkiskaupa




Þetta vefsvæði byggir á Eplica