Fréttir

Ísinn nálgast landið

10. mar. 2005

Fimmtudagur 10. mars 2005.

Meðfylgjandi myndir voru teknar úr flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SYN í eftirlits- og ískönnunarflugi úti fyrir Norðurlandi í dag.  Ísbrúnin lá næst landi 10 sjómílur norður af Kögri, 20 sjómílur norðaustur af Geirólfsnúpi, 20 sjómílur norðvestur af Grímsey og 42 sjómílur norðnorðaustur af Fonti. 

Veðurstofa Íslands birtir hafískort Landhelgisgæslunnar eftir könnunarflugið í dag á meðfylgjandi slóð:

http://www.vedur.is/hafis/gaeslan/lhg/lhg_nyjast.gif

Ísinn er komin nokkuð nærri landi og fer siglingarleiðin fyrir Horn að verða varasöm ef veðurspá næstu daga gengur eftir auk þess sem ís fer að nálgast Grímsey.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.



 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica