Fréttir

Þyrla Varnarliðsins sótti slasaðan sjómann

10. mar. 2005

Fimmtudagur 10. mars 2005.

Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 13:13 og tilkynnti að skipverji um borð í mótorbátnum Hauki EA-76 hefði slasast á fæti.  Óskað var eftir þyrlu til að sækja hann.  Báturinn var þá staddur um 12 sjómílur vestur af Stafnesi á Reykjanesi.

Hvorug þyrla Landhelgisgæslunnar er flughæf í dag.  TF-SIF er í 500 tíma skoðun en TF-LIF bilaði í gær.  Þess vegna hafði stjórnstöð Landhelgisgæslunnar samband við Varnarliðið og óskaði eftir aðstoð.  Þyrla Varnarliðsins var búin að hífa hinn slasaða upp úr bátnum kl. 14:30 og lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 14:50.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica