Banaslys á Þrengslavegamótum - TF-LIF sótti fjóra slasaða og flutti á sjúkrahús
Sunnudagur 6. mars 2005.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti í morgun fjóra slasaða á Landspítalann í Fossvogi eftir árekstur tveggja bíla á Þrengslavegamótum. Einn maður lést í slysinu.
Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 6:57 og tilkynnti um alvarlegt umferðarslys á Þrengslavegamótum. Tveir bílar, báðir með fimm manns innanborðs, höfðu rekist saman og var áreksturinn mjög harður. Óskað var eftir þyrlu strax.
Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út með bráðaútkalli og fór þyrlan í loftið kl. 7:18. Hún lenti við slysstaðinn kl. 7:25. Einn maður var úrskurðaður látinn á slysstaðnum en fjórir voru fluttir með þyrlunni til Reykjavíkur. Hún lenti þar kl. átta í morgun.
Auk áhafnar TF-LIF var sjúkraflutningamaður frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins með í þyrlunni til aðstoðar.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.
