Fréttir

Útkall TF-LIF vegna slasaðs vélsleðamanns í nágrenni Dettifoss

04. mar. 2005

Föstudagur 4. mars 2005.

Þyrla Landhelgisgæslunnar hélt af stað norður í land kl. þrjú til að sækja slasaðan vélsleðamann en hefur nú verið snúið við.  Menn úr Björgunarsveitinni Stefáni úr Mývatnssveit sem komu á slysstað í nágrenni Dettifoss töldu ekki nauðsynlegt að fá þyrlu á staðinn eftir að þeir höfðu metið ástand mannsins og ætluðu sjálfir að koma honum undir læknishendur.  Talið er að maðurinn sé slasaður á olnboga.  Þyrla Landhelgisgæslunnar var afturkölluð kl. 15:34.

Neyðarlínan hringdi í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 14:23 og gaf samband við lögregluna á Húsavík.  Lögreglan tilkynnti um vélsleðaslys nálægt Dettifoss en ekki var vitað nákvæmlega hvar á svæðinu það hafði átt sér stað.  Einn úr hópi vélsleðamannanna hafði keyrt í símasamband og lét vita. 

Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út en þá var þyrlan á æfingu með Slysvarnarskóla sjómanna.  Þyrlan hélt þegar til Reykjavíkurflugvallar til að taka eldsneyti.

Lögreglan á Húsavík hafði samband kl. 14:37 og tilkynnti að Björgunarsveitin Stefán úr Mývatnssveit væri lögð af stað.  Björgunarsveitin á Húsavík væri einnig að gera sig klára.  Vitað var að vélsleðamennirnir voru alls fjórir og einn þeirra slasaður.  Reiknað var með að Björgunarsveitin Stefán kæmi á staðinn eftir u.þ.b. 20 mínútur.

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, hélt norður í land kl. 15.  Hálftíma síðar var tilkynnt að Björgunarsveitin Stefán væri búin að leita á svæðinu norðan Dettifoss.  Kvikmyndatökulið var þá við Hólasand með flugvél og þyrlu og var þyrlan að leita á svæðinu.

Lögreglan á Húsavík hafði samband kl. 15:30 og lét vita að ekki væri þörf á þyrlunni eins og áður segir og var henni þá snúið til Reykjavíkur.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica