Sameiginleg æfing Landhelgisgæslunnar og danska varðskipsins Triton
Fimmtudagur 3. mars 2005.
Meðfylgjandi myndir voru teknar nýlega úr danska varðskipinu Triton er áhöfn þess hélt sameiginlega æfingu með flugdeild Landhelgisgæslunnar. Báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar tóku þátt í æfingunni. Áhöfn TF-LIF æfði eldsneytistöku frá varðskipinu en það er nokkuð vandasöm aðgerð sem þarfnast mikillar nákvæmni. Það getur gert gæfumuninn ef slys á sér stað í mikilli fjarlægð frá landi að þyrlan geti tekið eldsneyti frá skipi. Ekki er aðstaða til þess í varðskipunum Ægi og Tý.
Áhöfn TF-SIF æfði aðflug og lendingu á þyrlupalli Triton. Lending tókst vel þrátt fyrir talsverðan velting á skipinu. Forstjóri ásamt þremur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar var í boði skipherra Triton um borð í skipinu og sá áhöfn TF-SIF um að flytja þá til Reykjavíkur að æfingu lokinni. Um borð í skipinu fengu Landhelgisgæslumenn fræðslu um hlutverk varðskipsins Triton og verkefni. Eins og endranær eru Tritonmenn reiðubúnir til samvinnu við Landhelgisgæsluna á sem flestum sviðum. Sérstakur samningur er einnig til staðar um samstarf Landhelgisgæslunnar og danska sjóhersins á sviði leitar- og björgunarmála.
Á annarri myndinni eru báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar á flugi yfir skipinu en það er nokkuð sérstakt að ná mynd af þeim báðum í einu á flugi. Hin myndin sýnir TF-LIF í hangflugi yfir Triton á meðan verið var að dæla í hana eldsneyti frá varðskipinu.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.


