Ískönnunarflug Landhelgisgæslunnar
Miðvikudagur 2. mars 2005.
Áhöfn TF-SYN, flugvélar Landhelgisgæslunnar, fór í ískönnunarflug í gær úti fyrir Norðurlandi og Vestfjörðum. Ísröndin var næst landi 34 sjómílur norðvestur af Straumnesi og 56 sjómílur vestnorðvestur af Bjargtöngum. Ískönnunarskýrslur áhafnar TF-SYN eru birtar jafnóðum og þær berast á heimasíðu Veðurstofunnar á slóðinni: http://www.vedur.is/hafis/
Skýrsla Landhelgisgæslunnar frá í gær er á slóðinni: http://www.vedur.is/hafis/gaeslan/lhg/skyrsl_nyjast.html
Ískort frá Landhelgisgæslunni er á slóðinni: http://www.vedur.is/hafis/gaeslan/lhg/lhg_nyjast.html
Meðfylgjandi myndir tóku flugstjórarnir á TF-SYN,
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.



