Níu sóttu um stöðu forstjóra Landhelgisgæslu Íslands

Föstudagur 17. desember 2004.

Dómsmálaráðuneytið birti eftirfarandi fréttatilkynningu um hádegisbilið í dag:

Embætti forstjóra Landhelgisgæslu Íslands hefur verið auglýst laust til umsóknar. Umsóknarfrestur rann út þann 15. desember 2004. Níu sóttu um embættið, þeir eru:

Ásgrímur Lárus Ásgrímsson, deildarstjóri
Friðrik Jónsson, sendiráðunautur
Georg Lárusson, forstjóri Útlendingastofnunar
Halldór Ólafur Zoëga, forstöðumaður
Kristján Björn Garðarsson, forstjóri
Lárus Jóhannsson, frv. yfirdeildarstjóri
Magnús Gunnarsson, fjármálastjóri
Pálmi Jónsson, stýrimaður
Rafn Sigurgeir Sigurðsson, sjómaður.