Jólaball Landhelgisgæslunnar
Mánudagur 13. desember 2004.
Starfsmannafélag Landhelgisgæslunnar stóð fyrir jólatrésskemmtun í flugskýli stofnunarinnar við Reykjavíkurflugvöll sl. laugardag frá kl. 17-19. Starfsmenn fjölmenntu þar ásamt börnum, vinum og vandamönnum.
Það vakti mikla athygli nú eins og áður þegar Stekkjastaur og Gáttaþefur komu í þyrlu að flugskýlinu og í þetta sinnið höfðu þeir náð að góma Birgittu Haukdal söngkonu með sér í flugferðina. Stekkjastaur var flugstjóri.
Gáttaþefur og Birgitta fóru með gamanmál og sungu fyrir börnin. Síðan fengu þau nammipoka frá jólasveinunum og dönsuðu í kringum jólatréð. Að síðustu var boðið upp á pizzur og gos í kvöldmatinn.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.
Mynd DS: Gáttaþefur og Birgitta koma hlaupandi frá þyrlunni. Það var farið að dimma svo ekki náðust góðar myndir af lendingunni.
Mynd DS: Börnin hópuðust í dyr flugskýlisins og tóku á móti Birgittu og Gáttaþefi með mikilli eftirvæntingu. Stekkjastaur kom síðar þegar hann hafði gengið frá þyrlunni.
Mynd DS: Birgitta Haukdal og Gáttaþefur fóru á kostum. Vart mátti á milli sjá hvort þeirra hafði meira aðdráttarafl fyrir ungu kynslóðina.
Mynd DS: Hafsteinn forstjóri með afabörnin Hafstein og Önnu Katrínu til hægri.
Mynd: María Norðdahl: Allir eru litlir í jólasveinalandi.
Mynd DS: Skjólstæðingar Stekkjastaurs ábúðarfullir á svipinn enda eins gott að haga sér vel til að fá nammi.
Mynd DS: Þessi litla stúlka var dálítið hrædd við Stekkjastaur.
Mynd DS: Sigurður Steinar Ketilsson skipherra á Tý með afastrák.
Mynd DS: Tinni hans Kristjáns Þ. Jónssonar yfirmanns gæsluframkvæmda fór í jólafötin en þurfti að fara í megrun fyrst til að passa í þau því hann var búinn að borða svo mikið af kökum.