Börnin á Dvergasteini í jólaheimsókn hjá Landhelgisgæslunni

Föstudagur 10. desember 2004.

 

Landhelgisgæslan fékk skemmtilega heimsókn í morgun er nokkur börn af leikskólanum Dvergasteini komu og sungu fyrir forstjórann Hafstein Hafsteinsson og starfsfólkið á skrifstofunni.  Dvergasteinn er einmitt næsta hús við höfuðstöðvar Landhelgisgæslunnar á Seljavegi. 

 

Börnin sungu jólalög og fengu djús og piparkökur að launum.  Þetta var hin mesta skemmtun og gladdi þá sem á hlýddu. 


Dagmar Sigurðardóttir

fjölmiðlaftr.

 

Mynd LHG: Hafsteinn forstjóri sýnir börnunum líkan af varðskipinu Þór.