Fréttir

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti sjúkling frá Rifi til Reykjavíkur

30. nóv. 2004

Þriðjudagur 30. nóvember 2004.

 

Neyðarlínan hafði samband við Landhelgisgæsluna kl. 14:43 og gaf samband við lækni á Ólafsvík vegna manns sem hafði fengið heilablóðfall.  TF-LIF var þá í æfingaflugi yfir Faxaflóa og hélt þegar af stað til Rifs.  Þyrlan var komin til Rifs upp úr kl. 15 og lenti með sjúklinginn við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 15:40.

 

Dagmar Sigurðardóttir

fjölmiðlaftr.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica