Fréttir

Banaslys á hálendinu

27. nóv. 2004

Laugardagur 27. nóvember 2004.

Lögreglan á Hvolsvelli hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 17:06 og lét vita að bíll hefði farið út af veginum við Köldukvíslarjökul og lent út í á.  Einn maður var í bílnum og var talið að hann væri alvarlega slasaður.

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar var þegar kölluð út og fór TF-LIF í loftið kl. 17:45.  Með í för voru starfsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sem höfðu með sér nauðsynlegan búnað til að ná hinum slasaða út úr bílflakinu.

Þyrlan lenti á slysstað kl. 18:45 og var þá maðurinn látinn. 

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica