Fréttir

Kona í barnsnauð flutt með þyrlu til Reykjavíkur

26. nóv. 2004

Föstudagur 26. nóvember 2004.

Læknir á Blönduósi hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um hálfellefuleytið í morgun vegna konu í barnsnauð sem talið var nauðsynlegt að flytja með hraði á sjúkrahús í Reykjavík. Óskað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja konuna.  Hún var send af stað með sjúkrabíl sem koma átti til móts við þyrluna.

Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út og fór þyrlan í loftið kl. 10:59.  Þyrlan og sjúkrabíllinn mættust á Holtavörðuheiði um kl. 11:30.  Umferð á veginum var stöðvuð svo þyrlan gæti lent og tekið konuna um borð.   Þyrlan fór aftur í loftið kl. 11:41 og lenti við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 12:08.  Þar beið sjúkrabíll sem flutti konuna á fæðingardeild Landspítala Háskólasjúkrahúss við Hringbraut.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica