Nýr þyrlulæknir í þjálfun hjá Landhelgisgæslunni
Þriðjudagur 23. nóvember 2004.
Í þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar eru auk flugstjóra og flugmanns, stýrimaður (sigmaður), flugvirki (spilmaður) og læknir. Áður en menn geta hafið störf um borð í þyrlum Landhelgisgæslunnar þurfa þeir að fara í gegnum ákveðna grunnþjálfun.
Gísli E. Haraldsson læknir á slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss er nú í þjálfun hjá flugdeild Landhelgisgæslunnar til þess að geta starfað sem þyrlulæknir. Hann hefur m.a. fengið grunnfræðslu um land- og sjóbjörgun, flugvallaröryggi og fengið leiðbeiningu um notkun nætursjónauka. Í dag prófaði hann nokkrum sinnum að síga úr TF-SIF niður í varðskip en í gær var hann æfður í að síga úr þyrlu niður á sléttlendi og síðan í fjall.
Þar sem þyrlurnar tvær eru nokkuð frábrugðnar þarf hann að taka sömu æfingar á TF-LIF og verða þær haldnar á næstunni samhliða öðrum æfingum þyrluáhafna.
Jón Páll Ásgeirsson yfirstýrimaður á varðskipinu Ægi tók meðfylgjandi myndir um borð í varðskipinu í dag er Gísli og yfirstýrimaðurinn Páll Geirdal voru að búa sig undir að láta hífa sig úr varðskipinu upp í þyrluna.
fjölmiðlaftr.

Mynd JPÁ: Páll Geirdal yfirstýrimaður og Gísli E. Haraldsson læknir. Rafn Sigurðsson háseti horfir til himins þar sem þyrlan TF-SIF er á sveimi.

