Fréttir

Landhelgisgæslan og Efnamóttakan gera samning um eyðingu sprengiefna

18. nóv. 2004

Fimmtudagur 18. nóvember 2004.

Landhelgisgæslan og Efnamóttakan gerðu nýlega samning um tæknilega aðstoð og þjónustu sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar við eyðingu sprengiefna.

Verkefni sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar eru samkvæmt samningnum að
-eyða sprengiefnaúrgangi samkvæmt viðurkenndum aðferðum
-veita sérfræðiráðgjöf og þjálfun starfsfólks þegar nauðsynlegt er varðandi örugga geymslu og meðferð sprengiefnaúrgangs
-veita 24 tíma neyðarþjónustu vegna atvika sem tengjast sprengiefnum og fyrirspurnum varðandi sprengiefnaúrgang
-útvega sprengiefnakassa og sprengiefnagáma sem nauðsynlegir eru til geymslu sprengiefnaúrgangs sem bíður eyðingar.

Við starfsemi þessa fer sprengjudeild Landhelgisgæslunnar eftir alþjóðlegum stöðlum sem sprengjusérfræðingarnir eru sérmenntaðir í.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica