Rússneskar þyrlur kynntar fyrir Landhelgisgæslunni
Miðvikudagur 17. nóvember 2004.
Rússnesk sendinefnd kom til Landhelgisgæslunnar í gær og kynnti þyrlur af gerðinni Kazan Mil. Sendiherra Rússlands Alexander A. Rannikh var viðstaddur kynninguna sem haldin var í flugskýli Landhelgisgæslunnar við Reykjavíkurflugvöll. Kynningin var mjög ítarleg og sýndar allar helstu þyrlur sem fyrirtækið Rosoboronexport selur.
Stærsta þyrla sem fyrirtækið selur, MI-26, er gríðarlega stór og er mesta leyfilega flugtaksþyngd hennar 56 tonn en þess má geta að mesta flugtaksþyngd TF-LIF er 8,6 tonn. Þær þyrlur sem kynntar voru og henta best til björgunarverkefna og eftirlits kallast MI-172 og MI-17 en mesta flugtaksþyngd þeirra er 13 tonn.
Starfsmenn flugdeildar Landhelgisgæslunnar, flugstjórar, flugmenn, flugvirkjar, stýrimenn og læknar ásamt forstjóranum Hafsteini Hafsteinssyni, fylgdust vel með kynningunni og þótti hún bæði fróðleg og áhugaverð.
fjölmiðlaftr.

Mynd DS: Björn Brekkan Björnsson flugrekstrarstjóri, Þorkell Guðmundsson gæðastjóri og rússneski fulltrúinn sem sá um kynninguna.

Mynd DS: Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri og rússneski sendiherrann Alexander A. Rannikh.

Mynd DS: Sigurður Heiðar Wiium flugmaður, Páll Geirdal stýrimaður, Þórarinn Ingi Ingason flugmaður og Hafsteinn Heiðarsson flugstjóri ásamt Hafsteini Hafsteinssyni forstjóra.
