Fréttir

Útkall vegna línubátsins Stellu - Þyrla afturkölluð er hættuástandi var aflýst

16. nóv. 2004

Þriðjudagur 16. nóvember 2004.

 

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, var kölluð út 20 mínútur yfir tólf á miðnætti eftir að Reykjavíkurradíó lét vita að línubátinn Stellu  NK-12  væri að reka upp í Skarðsfjöru.  Þyrlan fór í loftið rétt fyrir klukkan eitt og hélt í lágflugi yfir Hellisheiði. Áhöfnin notaði nætursjónauka.  Skyggni var gott að Selfossi en dimm él eftir það.

 

Er þyrlan var komin að Bakkaflugvelli var hætt við að senda hana á svæðið þar sem fiskibáturinn Sæmundur hafði tekið Stellu í tog og hættuástandi var aflýst.   Lóðsinn í Vestmannaeyjum tók við er bátarnir komu að Dyrhólaey og eru bátarnir væntanlegir til Vestmannaeyja eftir hádegið.  TF-LIF lenti á Reykjavíkurflugvelli um kl. tvö í nótt.

 

Dagmar Sigurðardóttir

fjölmiðlaftr.

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica