Fréttir

Fyrrum fjandmenn hittust um borð í Tý í tilefni bókar um árásir bresku freigátunnar Falmouth á Tý í þorskastríðinu

12. nóv. 2004

Föstudagur 12. nóvember 2004.

Óttar Sveinsson hefur gefið út bókina ,,Útkall - Týr er að sökkva".  Á bókarkápu segir:  ,,Fáir vita hve litlu munaði að 21 Íslendingur færist með varðskipinu Tý á Hvalbaksmiðum þegar freigátunni Falmouth var tvisvar siglt á skipið að kvöldi 6. maí 1976, undir lok átakanna um útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 sjómílur.  Þetta var langalvarlegasti atburður allra þorskastríðanna þriggja.  Svo mikil heift var komin í stríðið að breski flotinn við Ísland vildi fá að skjóta úr fallbyssum  og senda tundurskeyti í áttina að varðskipum okkar.  Týr ætlaði að klippa á vörpu breska togarans Carlisle, sem var að ólöglegum veiðum, þegar skipherrann á Falmouth tók afdrifaríka ákvörðun.  Risastórri freigátunni var siglt á fullri ferð og afli inn í varðskipið sem fór nær alveg á hliðina og sjór kom upp að brúargluggum.  Öllum að óvörum rétti varðskipið sig af og Guðmundur Kjærnested sigldi beint að togaranum og klippti - á annarri skrúfunni eftir áreksturinn!  Það var slík niðurlæging að skipherra Falmouth ákvað að sigla aftur á Tý.  Margir vilja kalla þá ásiglingu morðárás.  Lítið myndefni er til af atburðinum - því gerðu fæstir Íslendingar sér ljóst hversu alvarlegur hann var.  Í bókinni lýsa áhafnir allra þriggja skipanna því í fyrsta skipti hvað gerðist nákvæmlega þegar við lá að Bretar bönuðu 21 Íslendingi."

Í tilefni af útgáfu bókarinnar hittust Guðmundur Kjærnested fyrrum skipherra og Mark Masterman fyrrum aðgerðastjóri á Falmouth um borð í varðskipinu Tý en þar gafst fjölmiðlum tækifæri til að ræða við kappana og höfund bókarinnar.

Á meðfylgjandi mynd eru Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri, Guðmundur Kjærnested fyrrverandi skipherra á Tý og Mark Masterman sem var aðgerðastjóri um borð í Falmouth þegar atburðirnir áttu sér stað.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica