Fréttir

Þyrla flutti slasaða stúlku frá Laugabakka

06. nóv. 2004

Laugardagur 6. nóvember 2004.

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LIF var kölluð út kl. 1:49 í nótt eftir að læknir á Hvammstanga hafði óskað eftir aðstoð vegna stúlku á Laugabakka sem hafði dottið og fengið slæma höfuðáverka.

Þyrlan fór í loftið kl. 2:18 og notaði áhöfnin nætursjónauka.  Haldið var til móts við sjúkrabíl sem var lagður af stað með stúlkuna.  Lent var við þjóðveginn á afleggjaranum að Bröttubrekku um kl. 2:40 og kom sjúkrabíllinn skömmu síðar.

TF-LIF flaug aftur af stað til Reykjavíkur með stúlkuna kl. 2:55 og lenti við slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss í Fossvogi kl. 3:20.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica