Tundurdufl kom upp með veiðarfærum togarans Svans EA-14 frá Dalvík
Um kl. 10:30 í morgun hafði skipstjórinn á togaranum Svani EA-14 frá Dalvík samband við sprengjudeild Landhelgisgæslunnar og lét vita að torkennilegur hlutur hefði komið upp með veiðarfærum skipsins er það var að veiðum út af Austurlandi. Skipstjórinn taldi að um tundurdufl væri að ræða.
Eftir samtal við skipstjórann kom í ljós að um var að ræða 227 kg. sprengjuhleðslu með forsprengju og hvellhettum úr bresku tundurdufli. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar töldu að tundurduflið skapaði hættu fyrir skipið og áhöfn þess og því var skipstjóranum ráðlagt að halda þegar til hafnar. Tveir sprengjusérfræðingar fóru með flugvél til Egilsstaða og fóru um borð í skipið í Neskaupstað þar sem þeir gerðu sprengjuhleðsluna óvirka. Þar næst fluttu þeir hana úr skipinu og eru nú, kl. 16, að eyða henni. Togarinn er á leið til veiða að nýju.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr./Adrian King sprengjusérfræðingur
