Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eru í Kolding með danska landhernum
Föstudagur 5. nóvember 2004.
Tveir sprengjusérfræðingar frá Landhelgisgæslunni, Jónas Þorvaldsson og Ágúst Magnússon, eru nú ásamt sprengjusérfræðingum danska landhersins við flugeldaverksmiðjuna í
Að sögn Jónasar Þorvaldssonar hefur eldsvoðinn og sprengingar í kjölfar hans valdið gífurlegri eyðileggingu í
Í morgun fóru sprengjusérfræðingarnir frá danska landhernum og sóttu lík slökkviliðsmannsins sem fórst í sprengingunni sl. miðvikudag. Ástandið er enn talið of hættulegt til að hefja hreinsunarvinnu í rústum verksmiðjunnar, sérstaklega vegna sprengiefnisins í gámunum sem enn getur sprungið. Núna eru sprengjusérfræðingarnir að færa sig nær rústunum, en þó í hæfilegri fjarlægð, og eyða flugeldum sem liggja eins og hráviði um nágrenni verksmiðjunnar.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.

Jónas og Ágúst.
