Fréttir

Sjávarfallatöflur og sjávarfallaalmanak fyrir árið 2005 komin út

05. nóv. 2004

Föstudagur 5. nóvember 2004.

 

Sjómælingasvið Landhelgisgæslunnar, Sjómælingar Íslands, hefur gefið út sjávarfallaalmanak og sjávarfallatöflur fyrir árið 2005.

 

Almanakið sýnir sjávarfallabylgjuna á myndrænan hátt.  Breyting frá degi til dags og hlutfallsleg stærð hennar við stórstraum og smástraum kemur greinilega fram á línuriti. Hverjum sólarhring er deilt niður í tveggja klukkustunda bil og er sjávarhæðin sýnd í metrum miðað við „núllið“ (meðalstórstraumsfjöru). Með hjálp línuritsins má því áætla sjávarstöðuna á hverjum tíma. Sé þörf á meiri nákvæmni koma töflurnar í góðar þarfir en í þeim er tími og hæð flóðs og fjöru gefinn upp nákvæmlega.

 

Stórstreymt er einum til tveim dögum eftir nýtt eða fullt tungl en smástreymt einum til tveim dögum eftir fyrsta og síðasta kvartil. Í almanakinu er sýnt hvenær kvartilaskipti tungls verða.

 

Sjávarfallatöflur, sjávarfallaalmanak og sjókort fást hjá Áttavitaþjónustunni í Reykjavík.

 

Í kortaskrá Sjómælinga Íslands eru upplýsingar um sjókort og aðrar útgáfur auk upplýsinga um umboðsmenn úti á landi. Kortaskráin er á heimasíðu Landhelgisgæslunnar á slóðinni: http://lhg.is/displayer.asp?cat_id=44

 

Á meðfylgjandi myndum má sjá tíma og hæð flóðs og fjöru í janúar - mars í Reykjavík 2005 og sjávarföll í Reykjavík í janúar 2005.

 

Árni Vésteinsson

deildarstjóri kortadeildar

 

 

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica