Gönguferð dægradvalarklúbbs flugdeildar á Trölladyngju og Lambafell
Mánudagur 18. október 2004.
Dægradvalarklúbbur flugdeildar Landhelgisgæslunnar skipulagði gönguferð á Keili í dag. Veðrið var frekar slæmt, rok og hiti við frostmark þannig að þáttaka var heldur dræm. Aðeins mættu þrír starfsmenn Landhelgisgæslunnar. Það voru þau Dóróthea Lárusdóttir fulltrúi í flugdeild, Sigurður Ásgeirsson þyrluflugstjóri og Dagmar Sigurðardóttir lögfræðingur. Einnig mætti Guðjón Jóhannesson bakari og útivistarmaður, vinur Sigurðar. Vegna veðurs og skyggnis var ákveðið að ganga frekar á Trölladyngju en Keili. Gönguferðin heppnaðist vel og tók alls tvo tíma með smá útúrdúr í sprungunni sem gengur í gegnum Lambafell.
Það er von göngugarpanna að samstarfsmenn standi sig betur næst og láti ekki veður og vinda hamla för.
Sjá meðfylgjandi myndir.
Mynd SÁ: Dagmar, Dóróthea og Guðjón í sprungunni á Lambafelli. Áhöfn TF-LIF notar sprunguna stundum til sigæfinga.
Mynd DS: Sigurður lætur hvorki kulda né myrkur aftra sér. Göngumenn þurftu að hafa lugtir á enninu til að sjá fram fyrir fæturnar á sér og notast var við gps-staðsetningartæki til að villast ekki í myrkrinu.