Rússarnir farnir

Laugardagur 16. október 2004.

Rússnesku herskipin sem hafa haldið sig á Þistilfjarðargrunni undanfarna daga eru nú farin af svæðinu.  Landhelgisgæslan leigði flugvél flugmálastjórnar, TF-FMS, til að fara í eftirlitsflug í morgun og kom þá í ljós að skipin höfðu siglt á brott. 

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.

Rússneska beitiskipið Pétur mikli og eitt af dráttarskipum rússneska sjóhersins.