Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann eftir bílslys á Bíldudal

Sunnudagur 26. september 2004.

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, sótti slasaðan mann á Bíldudal í morgun en hann hafði lent í bílslysi.  Þyrlan fór frá Reykjavíkurflugvelli kl. 6:16 og lenti á flugvellinum á Bíldudal kl. 7:30.  Þaðan var haldið til baka með hinn slasaða kl. 7:50 og lenti þyrlan við slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss kl. 8:35.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.