Áhöfn TF-SIF kölluð út vegna tveggja fiskibáta sem var saknað

Miðvikudagur 15. september 2004

Tilkynningarskyldan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 14:21 og tilkynnti að tveir fiskibátar hefðu horfið út úr sjálfvirka tilkynningarkerfinu og ekkert samband næðist við þá.  Þetta voru bátarnir Ólafur HF-251 og Ólafur HF-200.  Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var kölluð út og var TF-SIF reiðubúin til flugs þegar tilkynning barst um að bátarnir hefðu fundist. Þeir höfðu siglt 60 sjómílur út af Reykjanesi og voru því komnir út fyrir farsvið sitt, þ.e. það hafsvæði sem leyfilegt er miðað við þann fjarskiptabúnað sem er um borð í bátunum.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.