Kanadísk skúta sökk 25 sjómílur suðvestur af Malarrifi í dag
Mánudagur 30. ágúst 2004.
Björgunarstjórnstöðin í Halifax í Kanada hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 17 í dag og tilkynnti að kanadísk skúta væri að sökkva um 25 sjómílur suðvestur af Malarrifi. Björgunarstjórnstöðin í Halifax hafði þessar upplýsingar frá ættingjum áhafnar skútunnar sem höfðu náð símasambandi við þá með gervihnattasíma. Um borð í skútunni voru tveir menn. Símasamband við skútuna hafði rofnað og tilraunir til ná í hana aftur höfðu ekki borið árangur.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði út áhöfn TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, kl. 17:04 í beinu framhaldi af samtali við björgunarstjórnstöðina í Halifax. Einnig var haft samband við Tilkynningarskyldu íslenskra skipa og óskað eftir að neyðarkall yrði sent út á rás 16 svo að skip á svæðinu fengju upplýsingar um málið. Áhöfn
TF-LIF fór í loftið kl. 17:28. Áhöfn hennar hafði samband við stjórnstöð kl. 18:05 og hafði leit þá engan árangur borið. Aðstæður til leitar og björgunar voru ekki góðar. Mjög hvasst var á svæðinu eða 20-25 metrar á sekúndu og skyggni um 2 kílómetrar og lágskýjað. Ölduhæð var 4-5 metrar. Vegna leitarskilyrða fór
Skömmu síðar, eða kl. 18:13 sá áhöfn TF-LIF mennina í sjónum. Annar þeirra var í björgunargalla en hinn í vesti. Búið var að hífa þá um borð kl. 18:20.
Að sögn Einars Valssonar stýrimanns í TF-LIF var með ólíkindum að mennirnir skyldu finnast þetta fljótt því þeir voru í dökkum göllum og aðstæður til leitar þetta slæmar. Ekki er unnt að greina frá líðan þeirra að svo stöddu.
TF-LIF lenti við flugskýli Landhelgisgæslunnar kl. 19:06 þar sem sjúkrabifreiðir tóku á móti mönnunum og fluttu þá á sjúkrahús.
fjölmiðlaftr.
Mynd JPÁ: Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, lenti kl. 19:06 á Reykjavíkurflugvelli. Þar biðu sjúkrabifreiðar sem fluttu skipbrotsmenn á sjúkrahús. Ekki er unnt að greina frá líðan þeirra að svo stöddu.