Sameiginleg björgunaræfing varðskipsins Ægis og þyrlunnar TF-LIF
Fimmtudagur 26. ágúst 2004.
Eins og gefur að skilja eru björgunaræfingar fastur liður í starfsemi Landhelgisgæslunnar. Áhafnir varðskipa og þyrla Landhelgisgæslunnar æfa reglulega sjóbjörgun. Þá fara varðskipsmenn í björgunarbát og þyrlan flýgur yfir og sigmaður sækir félaga sína úr björgunarbátnum. Einnig fara varðskipsmenn beint í sjóinn og þyrlan sækir þá og skilar um borð í varðskipið aftur. Þessar björgunaræfingar fara bæði fram í dagsbirtu og að nóttu til. Í myrkri notar áhöfn þyrlunnar nætursjónauka.
Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar tekur einnig þátt í slíkum æfingum með Slysavarnarskóla sjómanna. Í einstaka tilfellum taka áhafnir varnarliðsþyrla einnig þátt í æfingunum.
Meðfylgjandi eru myndir af nýlegri björgunaræfingu áhafnar varðskipsins Ægis með áhöfn þyrlunnar TF-LIF. Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður tók myndirnar úr léttbát varðskipsins og frá varðskipinu Ægi. Í lok æfingarinnar var þyrluáhöfnin kölluð út vegna slyss.
fjölmiðlaftr.
Hér er TF-LIF yfir björgunarbát varðskipsins og sigmaður á leiðinni að bjarga félögum sínum úr honum. Það er Auðunn F. Kristinsson stýrimaður sem er í hlutverki sigmannsins.
Búið að ná einum manni upp úr bátnum. Hásetarnir á Ægi eru í hlutverki skipbrotsmanna.
Hér er verið að æfa björgun beint úr sjónum. Sigmaðurinn (með gula hjálminn) kominn til hjálpar.
Skipbrotsmönnum skilað um borð í varðskipið eftir vel heppnaða björgun.
Hér er þyrluáhöfn Varnarliðsins að æfa aðflug að varðskipinu og TF-LIF sést í baksýn.
Hér er verið að skila skipbrotsmönnum um borð í varðskipið Ægi.
Læknir í áhöfn TF-LIF hafði beðið um borð í varðskipinu á meðan á björgunaræfingunni stóð og varð að hífa hann um borð í þyrluna í snatri vegna útkalls sem kom í lok æfingarinnar.