Fjallað um Landhelgisgæsluna í heimildarmynd um heri á Norðurlöndum

Miðvikudagur 18. ágúst 2004.

Tveir sjónvarpsmenn frá danska hernum hafa verið hér á landi undanfarna daga við tökur á heimildamynd um heri á Norðurlöndum.  Þeir hafa m.a. heimsótt Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli, dómsmálaráðuneytið, utanríkisráðuneytið og Landhelgisgæsluna. 

Heimildarmyndin verður í fjórum þáttum og verður sýnd á Discovery Channel frá september – desember nk, einn þáttur í hverjum mánuði.  Sjónvarpsmaðurinn Lars Bøgh Vinther sér um viðtöl og þáttagerð og með honum er kvikmyndatökumaðurinn Jeppe Wahlstrøm.

Lars og Jeppe tóku m.a. viðtöl við sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar og fræddust um störf þeirra hér heima og í Írak.  Einnig fóru þeir með þyrlu Landhelgisgæslunnar er áhöfn hennar æfði fjallahífingu í klettunum fyrir ofan bæinn Stardal sl. mánudag.  Lars og Jeppe halda af landi brott á morgun.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.

Mynd DS: Jeppe og Lars fyrir utan flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli. Útkallsbifreið sprengjudeildar í baksýn.

Mynd/Jón Erlendsson flugvirki: Jeppe kvikmyndar varðskip í Reykjavíkurhöfn úr TF-LIF eftir vel heppnaða æfingu í fjallahífingum.

Mynd DS:  Hér sést glitta í Auðunn F. Kristinsson sigmann /stýrimann í klettunum fyrir ofan Stardal þar sem æfing í fjallahífingum fór fram.