Vitatúr varðskipsins Ægis
Fimmtudagur 5. ágúst 2004.
Á hverju ári siglir varðskip meðfram ströndum landsins vegna eftirlits með ljósvitum og skerjavitum sem ekki er hægt að komast í frá landi. Varðskipsmenn og menn frá Siglingastofnun sjá um eftirlit og viðhald á vitunum. Nýlega lauk varðskipið Ægir einni slíkri ferð.
Meðal verkefna var að fara yfir rafgeyma og sólarspegla og endurnýja perur. Einnig var skipt um vindrafstöðvar og tveir vitar á Breiðafirði voru sólarrafvæddir auk vitans á Gjögurtá. Þar við bættist venjulegt viðhald vitahúsanna, þ.e. að gera við húsin og mála þau.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.
Ljósmyndarinn sjálfur, Jón Páll Ásgeirsson yfirstýrimaður á leið í Bjarnarey. Varðskipið Ægir í baksýn.
Bjarnareyjarviti. Settir voru upp nýir sólarspeglar í vitanum og vindhraðamælir. Sjá gamla torfhúsið en ekki er langt síðan dúntekjufólk gisti þar.
Hér eru menn að koma á Zodiacbát varðskipsin Ægis úr vinnuferð í vitann í Grenjanesi skammt frá Raufarhöfn. Um borð eru 7 menn frá Siglingastofnun og 8 menn úr áhöfn Ægis.
Flatey á Skjálfanda. Vitinn og húsin við hann.
Innsiglingamerki við bryggjuna í Flatey. Sett vatn á rafgeyma og sólarspeglar, perur og fleira yfirfarið.
Ljósduflið við Hörgárgrunn í Eyjafirði var tekið upp í varðskipið og það yfirfarið og hreinsað. Einnig var skipt um legufæri (stein og keðju).