Skipstjórar vanrækja að hlusta á neyðarbylgju á rás 16 - Öryggi sjófarenda ábótavant af þeim sökum

Laugardagur 3. júlí 2004

Umhugsunarefni er hversu margir skipstjórar láta hjá líða að hlusta á rás 16, sem er neyðarbylgja fyrir skip og báta og öllum sjófarendum ber skylda til að hlusta á.  Óhætt er að segja að það dragi verulega úr öryggi sjófarenda.

Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar urðu þess varir rétt fyrir kl. þrjú í gærdag að verið var að grennslast fyrir um sómabátinn Eskey og nærstaddir bátar beðnir um að veita upplýsingar um ferðir hennar.  Varðstjórarnir höfðu þegar samband við Tilkynningarskylduna og þá kom í ljós að Eskey hafði dottið út úr tilkynningarskyldukerfinu um kl. 11:41 og tilraunir til að ná sambandi við bátinn höfðu ekki borið árangur.  Síðast var vitað um bátinn 19 sjómílur norðvestur af Rifi á Snæfellsnesi.

Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var kölluð kl. 15 og fór TF-SIF í loftið hálftíma síðar.  Þá var björgunarbáturinn Björg frá Ólafsvík einnig á siglingu í átt að svæðinu.  Er þyrlan kom á svæðið þar sem síðast var vitað um Eskey sáust nokkrir smábátar að veiðum.  Tilkynningarskyldan hafði þá óskað eftir því við báta á svæðinu að þeir hæfu leit en ekkert fararsnið var á þessum bátum.  Í ljós kom að Eskey var einn þessara báta.

Eftir að þyrlan hafði sveimað yfir Eskey skamma stund hafði skipverji á honum samband gegnum talstöð og spurðist fyrir um hvort verið væri að leita að honum, sendirinn fyrir sjálfvirka tilkynningarskyldukerfið væri dottinn út vegna bilunar.  Í ljós kom að skipverjar á Eskey höfðu ekki opna rás 16, sem er neyðarbylgja sem öllum skipum og bátum ber að hlusta á. Sama máli virtist gegna um aðra nærstadda báta.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.