Sprengjusérfræðingar fjarlægðu tundurdufl úr togaranum Brettingi
Laugardagur 3. júlí 2004.
Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar fjarlægðu í gær tundurdufl úr togaranum Brettingi og eyddu sprengiefninu úr því, 227 kílóum af TNT.
Togarinn Brettingur fékk tundurdufl í vörpuna snemma í gærmorgun þar sem hann var að veiðum út af Austfjörðum á svokölluðu Tangaflaki. Skipstjórinn hringdi strax í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sem gaf honum samband við sprengjusérfræðing. Samkvæmt lýsingu skipstjórans var um sprengihleðslu ásamt forsprengju að ræða og hafði hún fallið niður í fiskimóttökuna. Skipstjóranum var leiðbeint um frágang og ráðlagt að koma að landi.
Brettingi var siglt til Seyðisfjarðar og voru sprengjusérfræðingarnir komnir þangað kl. 10 um morguninn. Þeir fóru á báti út í togarann og fjarlægðu forsprengjuna frá aðalsprengjuhleðslunni. Þá var hægt að sigla togaranum að bryggju. Lögreglan stöðvaði alla umferð um höfnina áður en togarinn lagðist að og duflið var tekið í land. Duflið var síðan flutt á afvikinn stað þar sem sprengiefnið var brennt. Þetta var breskt tundurdufl úr seinni heimstyrjöldinni og innihélt það 227 kíló af TNT.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlafulltrúi.
Hleðsla úr tundurdufli um borð í Brettingi
Forsprengja og hluti sprengiefnis hennar.