Ellefu skipverjar Baldvins Þorsteinssonar fluttir með þyrlu um borð í skipið
Miðvikudagur 10. mars 2004.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti í dag 11 skipverja Baldvins Þorsteinssonar um borð í skipið til að kanna aðstæður og undirbúa það undir björgunaraðgerðir.
Sjá meðfylgjandi myndir sem áhöfn TF-LIF tók við það tækifæri.
Talið var óhætt að senda hluta áhafnarinnar niður í skipið til að undirbúa það fyrir flutning og kanna ástand þess. Þyrlan var skammt undan.
Flugbjörgunarsveit Slysavarnarfélagsins Landsbjargar reiðubúin með tankbílinn svo hægt sé að bæta eldsneyti á þyrluna eftir þörfum. Í sumum tilfellum er nauðsynlegt að hafa lítið eldsneyti á þyrlunni til að létta hana og þá er mikilvægt að hafa eldsneytisbirgðir í grenndinni.