Ískönnunarflug Landhelgisgæslunnar
Fimmtudagur 12. febrúar 2004.
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, fór í ískönnunarflug í dag. Komið var að ísröndinni innan við efnahagslögsöguna á Dhorn-banka vestur af Bjargtöngum en þar var hann í formi nýmyndunar. Ísröndinni var fylgt til N-Austurs þar til hún sveigði út úr efnahagslögsögunni norður af Straumnesi.
Að sögn Auðuns F. Kristinssonar yfirstýrimanns í flugdeild Landhelgisgæslunnar var ísinn nokkuð þéttur en ekki mikið um stóra ísfleka. Gisnar ísrastir voru meðfram ísbrúninni. Hægviðri var á svæðinu en þokubakkar við ísröndina.
Hægt er að nálgast skýrslu Landhelgisgæslunnar og kort af ísnum með upplýsingum um nákvæma staðsetningu hans á heimasíðu veðurstofunnar.
Sjá meðfylgjandi myndir sem Tómas Helgason flugstjóri TF-SYN tók í ískönnunarfluginu í dag.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.