Jólasveinar ferðast með þyrlu - Myndir frá jólatrésskemmtun starfsmannafélags LHG
Miðvikudagur 17. desember 2003.
Hér má sjá myndir sem Reynir Brynjarsson flugvirki hjá Landhelgisgæslunni tók á jólatrésskemmtun starfsmannafélags Landhelgisgæslunnar um síðustu helgi en hún var haldin í flugskýlinu á Reykjavíkurflugvelli. Eins og sjá má á myndunum notuðu jólasveinarnir mjög nútímalegan ferðamáta og komu í þyrlu, þó ekki þyrlu Landhelgisgæslunnar. Það voru þeir Gáttaþefur og Stekkjastaur sem komu að þessu sinni. Gáttaþefur sá um gamanmál og síðan dönsuðu þeir báðir við börnin í kringum jólatréð. Börnin skemmtu sér konunglega.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.