Fundur um öryggismál sjómanna haldinn í Reykjavík
Mánudagur 1. desember 2003.
Eins og fram hefur komið á vefsíðu Landhelgisgæslunnar hafa nokkrar stofnanir, ráðuneyti og félög staðið fyrir málfundum um öryggismál sjómanna víða um land á þessu ári í tengslum við langtímaáætlun í öryggismálum sjómanna. Fyrsti fundurinn var haldinn í Grindavík 31. mars.
Næsti fundur verður haldinn á Hótel Sögu í Reykjavík fimmtudaginn 4. desember nk. kl. 15:00. Fundarstjóri verður Friðrik Jón Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ. Sjómenn, útgerðarmenn og aðrir sem láta sig varða öryggismál sjómanna eru hvattir til að mæta á fundinn.
Sigurður Steinar Ketilsson yfirmaður gæsluframkvæmda flytur erindi fyrir hönd Landhelgisgæslunnar um framtíðarsýn stofnunarinnar varðandi fyrirkomulag leitar- og björgunarþjónustu við sjófarendur.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.