Björgun Þorsteins EA
Föstudagur 31. október 2003.
Reykjavíkurradíó hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 14:41 og tilkynnti að mikill leki væri kominn að vélarrúmi fjölveiðiskipsins Þorsteins EA en þá var skipið statt 25 sjómílur norðaustur af Glettinganesi. Tuttugu og fjórir menn voru í áhöfn skipsins. Skipverjar réðu ekki við lekann og óskuðu eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar. Veður var norðan eða norðvestan 12-13 m. á sekúndu og talsverður sjór.
Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sáu strax í fjareftirlitskerfi stofnunarinnar að tvö skip voru stödd í námunda við Þorstein EA. Starfsmenn Reykjavíkurradíós voru beðnir um að kalla þau strax upp og óska eftir að þau héldu í átt til Þorsteins EA. Einnig var óskað eftir að björgunarsveitir á Austfjörðum yrðu kallaðar út.
TF-SIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var þá á flugi fyrir vestan land og var hún þegar kölluð inn til Reykjavíkur. Þar fór þyrluáhöfnin um borð í TF-LIF með sex dælur og fór hún á loft frá Reykjavíkurflugvelli kl. 15:41.
Haft var samband við skipið stuttu síðar og þá var verið að koma taug úr fjölveiðiskipinu Vilhelmi Þorsteinssyni EA yfir í Þorstein EA. Kl. 16:54 var Þorsteinn EA kominn í tog en þá var lekinn orðinn það mikill að skipið var farið að ,,síga á verri hliðina" að sögn skipstjóra.
Vilhelm Þorsteinsson var kominn með Þorstein EA í tog kl. 16:54 og sigldi með skipið í átt til Neskaupstaðar á 6,5-7,5 sjómílna hraða og minnkaði lekinn fljótlega eftir að skipin voru komin á ferð.
TF-LIF var komin að skipunum um sexleytið og fóru tveir sigmenn/stýrimenn úr þyrlunni með sex dælur um borð í Þorstein EA. Fljótlega fóru dælurnar að hafa undan lekanum og sjór að lækka í vélarrúmi. Um kl. 19:30 hélt TF-LIF til Egilsstaða til að taka eldsneyti. Þá hafði sjór í vélarrúmi lækkað um 70 cm. á einni klukkustund. Annar stýrimannanna úr þyrluáhöfn varð eftir um borð í Þorsteini EA til að sjá um dælurnar.
Skipin eru væntanleg til Neskaupsstaðar kl. 22 í kvöld.
Þorsteinn EA-810 er samkvæmt sjómannaalmanaki Skerplu stálskip, smíðað í Noregi árið 1988 og gert út af Samherja á Akureyri.
Dagmar Sigurðardóttir
upplýsingafulltrúi