Djúpsprengju eytt við Álftanes
Mánudagur 13. október 2003.
Eins og fram hefur komið í fréttum fundu sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar tvær djúpsprengjur úr seinni heimstyrjöldinni út af Hliðsnesi á Álftanesi í byrjun október. Önnur þeirra var sprengd 3. október síðastliðinn eftir að sprengjusérfræðingar og kafarar Landhelgisgæslunnar höfðu flutt hana fjær byggð. Í dag kl. 16:05 var seinni sprengjunni eytt. Sprengjan var fest við pramma og flutt eina sjómílu fjær byggð. Síðan var sprengiefni komið fyrir á prammanum og sprengingu komið af stað með því að tendra í því. Sprengjan mældist 0.7 á Richtersmælikvarða samkvæmt skjálftavef Veðurstofunnar. Að sögn sjónarvotta var hún tilkomuminni en sú fyrri sem mældist 1.6 á Richtersmælikvarða.
Sprengjusérfræðingar frá bandaríska flughernum voru um borð í varðskipinu Tý og fylgdust með starfsbræðrum sínum hjá Landhelgisgæslunni eyða sprengjunni.
Dagmar Sigurðardóttir
upplýsingafulltrúi
Mynd: LHG/Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður: Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar að störfum við prammann.
Mynd: LHG/Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður: Sprengjunni eytt.
Mynd: LHG/Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður: Adrian King sprengjusérfræðingur heldur á forsprengjunni.
Mynd: LHG/Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður: Kafarar og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar ásamt sprengjusérfræðingum bandaríska sjóhersins um borð í varðskipinu Tý.