Sprengingin kom fram á jarðskjálftamælum
Föstudagur 3. október 2003.
Annarri djúpsjávarsprengjunni, sem kafarar og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar fundu út af Hliðsnesi á Álftanesi, var eytt kl. 17:45 í dag. Sprengingin var svo öflug að hún kom fram á jarðskjálftamælum Veðurstofunnar og mældist 1.6 á Ricther.
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar hófu snemma í morgun að undirbúa eyðingu djúpsjávarsprengjanna tveggja sem fundust út af Hliðsnesi á Álftanesi. Sprengjusérfræðingar og kafarar Landhelgisgæslunnar fóru um borð í varðskip í Hafnarfjarðarhöfn og fór varðskipið frá bryggju fimm mínútur fyrir átta. Þá var gert ráð fyrir að hægt yrði að eyða sprengjunum um hádegisbilið.
Farið var á slöngubát að staðnum kl.
Fram eftir degi reyndu kafararnir árangurslaust að finna hina sprengjuna en allt kom fyrir ekki. Um kl.
Kl.
Eftir það var ákveðið að halda áfram að leita að hinni sprengjunni en það gekk ekki vel sökum lélegs skyggnis neðansjávar og mikils þara og var að lokum ákveðið að hætta leit vegna öryggis kafaranna.
Um kl.
Tæpum hálftíma síðar eða um kl.
Sprengjusérfræðingar og kafarar Landhelgisgæslunnar ráðgera að leita að hinni djúpsjávarsprengjunni eftir helgina og eyða henni. Sú sprengja er ekki eins hættuleg og sú sem var eytt í dag því að kveikibúnaðinn vantar á hana.
Landhelgisgæslu Íslands
Mynd: (C) MOTIV-MYND, Jón Svavarsson.
jonmotiv@emax.is Frétta og ljósmyndaþjónusta.